top of page
Í klóm arnarins

Helgi Máni Sigurðsson

 

Þetta vor eignaðist Júlli nýtt áhugamál sem var fuglar, aðallega ernir. Hann kynntist þeim fyrst þegar hann fór í gönguferð með bekknum á Esjuna og krakkarnir sáu þennan konung fuglanna á Íslandi. Þá fór hann að lesa sér til um erni og komst að því að þeir væru með stærstu ránfuglum í heiminum.

Um sumarið fór Júlli með fjölskyldunni í sumarbústað vestur á firði þar sem ernir eiga einmitt heima og eru dagleg sjón. Þá var hann kominn í návígi við þá og það opnaði fyrir honum tækifæri sem hann gat ekki látið fram hjá sér fara – það gat ekki endað öðruvísi en með ósköpum.

bottom of page